Holugeitungar

Þetta er verkefni sem ég hef verið að vinna í síðustu daga. Fyrst las ég heftið um geitunga á Íslandi svo valdi ég mér geitung.

Ég valdi Holugeitung. Svo fann ég upplýsingar um hann og skrifaði þær niður. Svo Setti ég textann inn í Power point og fann myndir. Svo setti ég bakgrunn og setti inná slideshare. Svo setti ég þær hér inná bloggið.

 Hér er glærukynningin mín. 

 

 

 


Stærðfræði

Þetta er fyrsta verkefnið mitt í Excel. Mér fannst gaman að gera þetta og ég lærði mikið um þetta.

 


Trúarbragðafræði

Í trúarbragðafræði síðustu vikur hef ég verið að gera þetta verkefni.

Ég átti að fara inn á trúarbragðafræðivef sem var inni á nams.is og finna þar hvað var líkt og hvað var ólíkt með trúarbrögðunum: kristni, islam og gyðingdóm.  Ég vann þetta í word og fann svo myndir. Svo fór Auður (kennari) yfir.

 Ég lærði margt sem ég vissi ekki áður og mér fannst þetta mjög skemmtilegt verkefni.

Svo vistuðum ég þetta á box.net og hér er verkefnið mitt.

 

 

 

 


Sigdaluninn mikli - Náttúrufræði

Undanfarnar vikur hef ég verið að vinna með eitt af undrum náttúrunnar í náttúrufræði. Ég gerði power point kynningu um Sigdalinn mikla í Afríku. Ég byrjaði að afla mér upplýsinga í bókum og á netinu. Svo þegar ég var komin með allar upplýsingar sem ég þurfti fann ég myndir á google.

Ég setti þetta inn í power point og svo hannaði ég bakgrunn í stíl við myndirnar. Þetta átti að vera litrík og fjölbreytileg kynning svo engin glæra átti að vera eins. Svo settum við þetta inná slideshare og þaðan inná bloggið.

Mér fannst þetta mjög gaman og væri alveg til í að gera svona kynningu aftur, bara um eitthvað annað efni. Mér fannst glærurnar mínar heppnast ansi vel


Hallgrímur Pétursson

Hallgrímur Pétursson var eitt frægasta skáld Íslendinga. Hann samdi mörg ljóð og marga sálma. Hann giftist Guðríði Símonardóttur sem var rænt í Tyrkjaráninu. Þau eignuðust þrú börn, Eyjólf, Guðmund og Steinunni en hún dó ung.

Hallgrímur starfaði sem prestur á mörgum stöðum en áður en hann varð prestur fór hann annað hvort til Kaupmannahafnar eða norður-Þýskalands og var lærlingur í járnsmíði um tíma.

En svo fór hann í prestsnám til Kaupmannahafnar í Vorrar frúar skóla. Hann fékk það verkefni að kenna fólkinu úr Tyrkjaráninu kristni og íslensku en þar kynntist hann Guðríði.

Hallgrímur dó úr holdsveiki á Ferstiklu hjá elsta syni sínum Eyjólfi.

 


Bókagagnrýni

Bókagagnrýni - Leyndardómur ljónsinns Bókin Leyndardómur ljónsinns eftir Brynhildi Þórarinsdóttur er spennandi barnabók sem gerðist í Reykjaskóla, Hún er um nokkra krakka sem reyna að leysa dularfulla gátu um merkilega hluti sem gerðust 1940. Mér finnst þetta spennandi og hrífandi bók. Persónuleikarnir eru lifandi og maður lifir sig alveg inn í hana. Ég mæli með henni og hún er meira spennandi ef maður er búinn að fara á Reyki og veit hvar allt er og hvernig það lítur út.Ég gef bókinni 4 af 5 stjörnum

bokagagnrini

 

Tyrkjaránið

Síðustu vikur hef ég verið að læra um Tyrkjaránið. 1627 komu ræningjar og rændu fólki á Austfjörðum, Grindavík og Vestmannaeyjum. Mér fannst mjög gaman að læra um Tyrkjaránið.Grin

 Mér fannst áhugaverðast hvað það var mikill munur á frelsinu hjá körlum og konum sem voru í þrælahaldi. Menn fengu að ganga úti á götunum án fylgdar en konur fengu ekki að fara út úr húsi nema með sérstakt leyfi og fylgdarmann með. Mér finnst það áhugaverðast því að mér finnst skipta miklu máli að karlar og konur hafi sömu réttindi. Mér fannst ég ná að setja mig í spor fólksins sem var rænt með því að ímiynda mér hvernig það væri að vera í þrælahaldi í alveg ókunnu landi.Shocking

Þetta var fyrsta skipti sem ég gerði fréttablað í Publisher en mér fannst samt frekar einfalt að vinna í forritinu. Mér tókst vel að skrifa, setja inn myndir og breyta útlitinu (að mínu mati)

Hér fyrir neðan getið þið skoðað fréttablaðið mitt Smile

 


Reykir 2011

Þann 14-18 nóvember fór ég og árgangurinn á Reyki. Rútan fór kl. 8:30 á mánudeginum 14. nóv. Ferðin tók okkur u..m.þ.b. 2 klst. og 30 mín. með stoppi í Borgarnesi. Þegar við vorum komin þangað, fórum við inn með farangurinn og svo beint í hádegismat í Ólafshúsi.

Tímarnir sem við vorum í voru: Íþróttir og sund, Náttúrufræði, Undraheimur auranna (fjármálafræðsla), stöðvaleikur og Byggðasafnið. 

Í íþróttum og sundi fórum við í allskonar leiki en í sundinu var frjálst. Það sem mér fannst skemmtilegt við íþróttirnar var að maður fékk hreyfingu en á svo miklu skemmtilegri hátt en að gera venjulegar æfingar.

Svo vorum við í Náttúrufræði. Þar fórum við í fjöruferð og týndum þara, bláskeljar og margt annað skrítið. Svo fórum við og skoðuðum kræklingana úr Bláskeljunum í smásjá, það fannst mér skemmtilegast. 

Í fjármálafræðslunni töluðum við um ýmislegt sem tengdust fjármálum, fengum bók sem við svöruðum nokkrum spurningum í og fórum í peningaspil. Það sem mér fannst skemmtilegast í þessu var peningaspilið. Grin 

Svo var það stöðvaleikurinn. Þar fórum við í "göngutúr" og kennarinn sagði okkur ýmislegt um Reyki og svæðið í kring. Það sem mér fannst skemmtilegast og áhugaverðast þar var þegar hann sagði okkur frá því þegar 20 hermenn dóu í Hrútafirðinum en aðeins 16 fundust.

Á Byggðasafninu sáum við ýmislegt áhugavert, við sáum fullt af gömlum hlutum t.d. hatt sem var heklaður úr mannshárum, ojjj. Svo sáum við hárkarlatennur og gömul stígvél. Svo kenndi starfsfólkið (kennararnir) okkur nokkra gamla leiki, t.d. að reisa horgemling og leik þar sem maður átti að hoppa yfir bein með hendur á tám án þess að sleppa þeim þegar maður hoppar. Það fannst mér skemmtilegast.

Mér fannst ekkert smá gaman að fara í þessa ferð, ég kynntist nýjum krökkum og gerði margt nýtt. Þetta er samt ekki svona ferð sem mann langar aftur í finnst mér, þó það hafi verið rosa gaman og ég hefði ekki getað skemmt mér meira. Wink

  

  


Staðreyndir um Evrópu

Þetta er verkefni um staðreyndir um Evrópu. Ég fékk spurningar sem ég átti að svara og svo skrifaði ég það inná Word. Þetta var mjög gaman og ég lærði margt nýtt eins og að gera flotta skrift á Word og svo lærði ég margt um Evrópu. Þetta var skemmtilegt verkefni um Evrópu.

 


Náttúrufræði

Í náttúrufræði hef ég verið að læra að greina plöntur og pressa þær. Ég byrjaði á að fara út í móa og finna fyrstu plöntuna. Ég greindi hana og skrifaði um  það niður í vinnubókina mína. Ég þurkaði plöntuna og í næsta tíma þá límdi ég hana í vinnubókina. Ég fann 3 plöntur, Gulmöðru, Fuglaertur og Grænvönd. Ég lærði margt nýtt t.d. vissi ég ekki neitt um Grænvönd og Fuglaertur en nú veit ég helling. Svo lærði ég mikið um hvaða plöntur vaxa í umhverfinu mínu. Mér gekk ansi vel með þessi verkefni en stundum var erfitt að finna hvaða plöntu við vorum með.Mér fannst mjög gaman að gera þessi verkefni og væri alveg til í að gera fleiri.

 gulmadra Gulmaðra

 fuglaertt Fuglaertur

1234812296_3b3d7bde01 Grænvöndur

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband